Streita er undirliggjandi orsakaþáttur í svo mörgum sjúkdómum. Hún getur birst í mismunandi myndum og er stundum svo samofin tilverunni að við tökum ekki eftir henni fyrr en hún er farin að valda vandamálum. Hjá Lilju ganga tímarnir út á að ná það mikilli djúpslökun að það fer að losna um streitu, áföll ofl. sem þarf til að finna kyrrðina í sjálfum sér. Það er einmitt í kyrrðinni þar sem kraftaverkin byrja að gerast. Lilja vinnur með heilun (reikiheilun, tónheilun, orkuheilun) Yoga nidra, Yin yoga bandvefslosun, samtöl ofl.
Vertu hjartanlega velkomin
Reiki heilun / Orkuheilun / Tónheilun / Sjálfsheilun / Yoga nidra djúpslökun / Yin Yoga bandvefslosun
Samtöl / Streitulosun / Fræðsla / Eftirfylgni / Einstaklingsmiðuð nálgun
Meðferðir
Reiki er heilunarorka sem flæðir af sjálfsdáðum í gegnum hendur þess sem gefur heilunina. Það besta við reikið er að það veit hvert það á að fara. Þiggjandi lætur sér líða vel sitjandi eða liggjandi, hann þarf ekkert aðhafast, engar kröfur, bara liggja og njóta. Í reikiheilun finna þiggjendur mikinn innri frið og jákvæða orku streyma inn í líkamann. Engin heilun er eins en allar eru þær unaðslega notalegar og þiggjandi kemur endurnærður tilbaka.
Heilun við áfallastreitu
Ég fer reglulega í heilun til Lilju og er alltaf endurnærð eftir að hafa verið hjá henni. Hún tekur alltaf hlýlega á móti mér og nær að jarðtengja mig í hvert skipti. Hún er með fallega nærveru, róandi rödd og ég finn fyrir miklu öruggi og trausti í heiluninni. Ég lenti í miklu áfalli og þjáist af kvíða í kjölfarið sem ég er að vinna úr og heilunin hefur hjálpað mikið til við úrvinnsluna, jarðtengt mig og hjálpað mér að ná djúpri slökun. Ég hlakka alltaf mikið til að koma til Lilju og finn hvað það gerir mér gott. Mæli eindregið með fyrir alla.
Auður Finnbogadóttir
Það er alger draumur að koma til Lilju, hvort sem um er að ræða heilun, jóga nidra eða yin yoga bandvefslosun. Lilja hefur einstaka róandi og heilandi nærveru sem mætir manni með mikilli umhyggju og hugarró. Ég upplifi einlægni og algert traust. Lilja er einstakur heilari og ég finn alltaf mjög mikla orku streyma inn í kerfið mitt þegar ég fer til hennar. Í bandvefslosuninni mætir hún manni þar sem maður er og fer er rólega í allar æfingarnar. Æfingarnar veita mikla slökun en á sama tíma losa þær um spennu og streitu í líkama og huga. Ég hef aldrei farið í eins djúpa slökun og komist í eins mikla snertingu við sjálfa mig og þegar ég prófaði einkatíma í jóga Nidra hjá henni í beinu framhaldi af heilun, það er algjörlega magnað. Með sinni mjúku og róandi röddu leiddi hún mig inn í heim sem ég hafði aldrei komist inn í áður. Ég hef aldrei upplifað jafn djúpa slökun og í þessum tímum. Ekkert betra en að endurstilla huga eftir erilsama viku. Ég mæli heilshugar með tímunum hjá Lilju. Hún er fagmanneskja fram í fingurgóma. Maður finnur fyrir öllum þeim kærleika og metnaði sem hún hefur til að hjálpa manni til að fá sem mest út úr því sem maður er að fást við hverju sinni.
Laufey Karlsdóttir