Yoga nidra

Djúpslökun

Yoga nidra einkatímar

Streita er undirliggjandi orsakaþáttur í svo mörgum sjúkdómum. Hún getur birst á mismunandi myndum og er stundum svo samofin tilverunni að við tökum ekki eftir henni fyrr en hún er farin að valda vandamálum. Yoga nidra virkar mjög vel fyrir ADHD, gegn alzheimers, krónískum verkjum, vefjagigt, áfallastreitu svo eitthvað sé nefnt.

Rannsóknir hafa sýnt að einkatímar í Yoga nidra skila mjög góðum árangri. Þar er hugleiðslan sérsniðin að iðkandanum sem fær aðstoð við að finna rótina að því sem kemur í veg fyrir vellíðan í hans lífi.

Iðkandi kemur sér þægilega fyrir á notalegum heilunarbekk með innfrarauðum hita. Hann þarf ekkert að gera nema að hlusta á það sem er sagt og slaka algerlega á. Iðkandi fær öll fyrirmæli og er leiddur í gegnum hvert einasta stig í átt að þeim stað í hugleiðslunni að það ríkir alger kyrrð, þeim stað þar sem sjálfsheilun getur farið fram. Þetta er alveg magnað og ég mæli hiklaust með þessu fyrir alla alveg sama hvort vandamálið sé líkamlegt eða andlegt.

Það hefur reynst einstaklega vel að taka heilun fyrir einkatíma í Yoga nidra. Þiggjendur ná djúpslökun sem aldrei fyrr og koma breyttir og endurnærðir út í daginn.