Lærðu að elska þig - námskeið
Umsagnir
Í heildina þá finnst mér lífið í dag miklu auðveldara og bjartara en það var áður en ég fór á þetta námskeið. Ég er sáttari við sjálfa mig og geng inn í bjarta framtíð laus við allan ótta og áhyggjur. Ég lærði margt um lífið og þann leyndardóm sem það hefur að geyma og svo lærði ég einnig svo mikið um sjálfa mig. Það eru alls konar viðhorf hjá mér sem hafa breyst til hins betra og gert lífið enn skemmtilegra og spennandi en það var áður. Viðhorf mitt gagnvart nánustu fjölskyldu minni hefur til að mynda lagast mikið og sambandið við hana sömuleiðis. Ég bý yfir miklu meiri samúð og kærleika til sjálfrar mín og allra almennt. Ég er dugleg að notafæra mér hugleiðslur og tækni sem mér var kennd á námskeiðinu, sem höfðu það að markmiði að hjálpa mér að sjá fólk og verkefni/vandamál lífsins á jákvæðari og uppbyggilegri hátt en áður. Ég horfi öðruvísi á erfið mál og fólk og er nánast hætt að pirra mig á alls konar sem ég eyddi allt of mikilli orku hér áður fyrr. Ég sé ekki tilganginn með að burðast með liðna atburði sem skipta engu máli lengur. Ég dýpkaði skilning minn og tengingu við innsæið mitt og er dugleg að hlusta á það og fylgja því. Það er lykillinn að farsælli framtíð.
Arnbjörg G. Finnbogadóttir
Lærðu að elska þig
Námskeiðið er hannað af Guðbjörgu Ósk Friðriksdóttur oghefur hún sjálf kennt það í fjölmörg ár ásamt fleiri kennurum sem hafa lært hjá henni. Hægt er að lesa nánar um námskeiðið á heimasíðunni hennar www.osk.is en hér kemur smá kafli af síðunni hennar sem útskýrir innihald námsins ágætlega:
“Ég lofa þér að það verður margt sem skýrist og verður auðveldra og fallegra í þínu lífi eftir að þú hefur heyrt þann fróðleik sem er á námskeiðinu.
Tæplega 30 ára reynsla við að hjálpa fólki að skapa yndislegra og þægilegra líf hefur veitt mér einstaka þekkingu sem mun örugglega nýtast þér mjög vel.
Þú og þín saga er vissulega einstök en vertu viss um að það eru til lausnir og leiðir fyrir þig.
Í tímunum munt þú komast að því hversu mögnuð manneskja þú ert og að lífið þitt er að bíða eftir þér með ótal möguleika og ævintýri sem þú munt njóta þín í.
Þú ert í námi sem tekur á öllum sviðum lífsins. Fyrst byggir þú upp sterkt sjálfstraust og gjörbreytir þeim viðhorfum sem þú hefur um þig. Skoðanir þínar breytast, það hefur virkilega djúp og mikil áhrif á tilveruna. Margt sem þér þykir ómögulegt í dag verður allt í einu gerlegt og hættir að hafa neikvæð áhrif á þig. Það segja allir „ég trúi ekki að þetta sé að gerast“ vegna þess að það breytist svo margt, meira að segja fólk og aðstæður sem þú heldur að geti ekki breyst.
Fæstir gera sér grein fyrir því hvað ótti stjórnar stórum hluta af lífinu og þegar þú öðlast hugrekki til að standa með þér, vera þú, láta draumana þína rætst, breyta því sem þig hefur langað að hafa öðruvísi þá ert þú í raun búin að skapa nýtt líf”.
Fyrir hverja er þetta námskeið?
Námskeiðið er fyrir alla og kannski sérstaklega fyrir þá sem langar til að:
- Ljóma af hamingju og vellíðan,
- Vera með neista fyrir lífinu,
- Vera meðvitaðri um þýðingu alls sem er að gerast í lífinu?
- Breyta einhverju,
- Líða betur líkamlega og/eða andlega?
Um námskeiðið:
Við hittumst á 3-4 vikna fresti, 90 mínútur í senn. Tímarnir sem eru 10-12 talsins byggjast upp á fræðslu og samtali og í hverjum tíma er alltaf nýtt viðfangsefni sem byggir á því sem undan var unnið með. Það má segja að verið sé að byggja fallegt hús og það er byrjað á grunninum eins og í öllu sem maður ætlar að gera vel og svo er næsta hæð fyrir ofan byggð ofan á þeirri sem nýbúið er að byggja o.s.frv.
Á milli tímanna þarf nemandi að vinna léttvæg verkefni sem taka u.þ.b. 10 mínútur á dag í mesta lagi. Verkefnin eru mikilvægur hluti af námskeiðinu og því nauðsynlegt að vinna þau svo að ”húsið” verði sterkbyggðara og fallegra. Sum verkefnanna eru huglæg önnur þarf að punkta niður hjá sér í bók, en þetta er allt sjálfsvinna.
Boðið er upp á nemagjald fram á vor. Ég er kennaranemi í þessu
heilsársnámi og á þessu stigi námsins eigum við að taka nema á gjaldi. Hingað
til hafa nemar fengið námskeið gjaldfrjálst. Ég
er þá að fara að kenna námskeiðið í annað skipti eftir áramót. Námskeiðið verður á helmingsverði eða 12.000,- kr. skiptið.
* * * * * * * *.
Boðið er upp á frían kynningartíma. Þar er hægt að fá
nánari upplýsingar um námskeiðið og þá um leið hægt að ganga úr skugga um hvort
þetta sé eitthvað sem höfðar til þín eða ekki.
Ath. Flest stéttarfélög niðurgreiða þetta námskeið,
svo og allt annað sem ég er að bjóða upp á, á heimasíðunni minni.
Hlakka til að heyra frá þér:)
Lilja Karlsdóttir