Yin yoga/Bandvefslosun
Yin yoga/bandvefslosun - upplýsingar
Þetta er heilunaraðferð þar sem heilað er í gegnum líkamann. Hugur er settur til hliðar og notuð er samtalstækni til að losa um verki, líkamlega jafnt sem andlega. Þetta er öflug tækni sem skilar ólýsanlegum árangri. Hver einkatími tekur u.þ.b. 2 klst.
Meðferðin bætir svefn, hún hjálpar til við að losa um stirðleika í liðum og og einnig að koma líkamanum í það jafnvægi sem hann á að vera í. Meðferðin róar taugakerfið, veitir orku, er einstaklega hentugt fyrir fólk sem vinnur mikið við tölvu og hreyfir sig lítið. Yin yoga/bandvefslofun losar um hindranir í taugakerfinu. Það má stundum segja að sálfræðingar tala við skjólstæðinga sína og veita þeim skilning á vandamálunum sem þeir eru að klást við, sem er frábært. Fyrir suma er það nóg, fyrir aðra ekki. Ef ekki, Þá þarf að prófa eitthvað nýtt t.d. yin/yoga bandvefslosun. Ath. það þarf ekki að hafa verið hjá sálfræðingi til að koma í yoga þessa meðferð. Í stuttu máli þá getur meðferðin skolað vandamálinu út úr líkamanum án þess að iðkandi þurfi að gera neitt nema liggja, slaka og hlusta. Heilbrigður líkami sem hefur getað unnið úr öllum áföllum á lífsleiðinni, allri streitu o.s.frv. er með s.k. 70.000 virka prana/lífsorku í líkamanum. Lífsorkan er eins og rafmagn sem heldur honum gangandi. Við áföll, álag o.s.frv. þá frýs þessi orka í líkamanum og verður þá ónothæf. Þegar mikið af orkunni er frosin þá er lífsorkan(rafmagnið) orðin lág og þá fara vandamálin að banka upp á í formi verkja, streitu, kvíða, þunglyndis svo eitthvað sé nefnt. Það sem þessi meðferð gerir er að hún vinnur að því að afþýða þá lífsorku sem er frosin þannig að hún geti farið að gagnast líkamanum aftur. Það getur ýmislegt gerst meðan á afþýðingunni stendur og það er eðlilegt. Sumir fara að hristast, aðrir gráta, sumir eru í algerri alsælu. Ég hef séð ótrúlegustu hluti gerast þar sem fólk nær að losa áföll úr líkamanum með einhverjum hætti og það hefur gengið út úr tímanum laust við það sem það var búið að vera að glíma við í áraraðir. Það er allavega nauðsynlegt að vera alveg rólegur yfir því sem gerist, þ.e. ef eitthvað gerist, allt er eðlilegt og er bara losun/afþýðing á frosnu prana/lífsorku sem við viljum fá tilbaka til að við getum lifað því lífi sem okkur dreymir um. Að vera hamingjusöm, heilbrigð, falleg, kærleiksrík eða hvað það er sem okkur dreymir um.