Um mig

Í sögum býr lærdómur

Nám og reynsla

Reiki heilun

Kennari: Páll Erlendsson (Ég tók meistarann einnig hjá honum, en meistarar hafa fengið sérstaka víglsu og kennslu til að mega kenna öðrum reiki heilun).

Orkuheilun.

Ég stundaði nám í Katmandú, Nepal hjá Rahul Bahrti. Mánaðarlangt námskeið þar sem nemendum eru kenndar fornar og náttúrulegar heilunaraðferðir sem virka jafnt á  líkama, orkulíkama og sál. Þar lærði ég líka heilun með söngskálum, Thai- nudd, Thai chi,  Ásamt ýmsum hreyfingum og æfingum til að styrkja, heila og hreinsa  orkustöðvar líkamans. Mataræði og  umhirða líkamans ásamt sálarfræði ofl.  Alþjóðavottað skirteini.

Yoga Nidra

Kennari: Kamini Desai, en hún er frumkvöðull í þeim efnum á öllum Vesturlöndum.

Yin yoga/bandvefslosun

Kennari: Kamini Desai, Auður Bjarnadóttir og Skúli Sigurðsson

Yin yoga

Kennari: Salvör hjá Yoga Shala

Tónheilun, orkuheilun, sjálfsheilun, sálarfræði

Rahul Bahrti

Wellbeing/jákvæð sálfræði

Námskeið á vegum Yale Universtity

Þerapían “Lærðu að elska þig”

Eins árs nám á vegum Lífsstílshönnuða. 11 mánaða einstaklingsnámskeið með samtölum, verkefnum, sjálfsskoðun og fræðslu.

Halda rými í hugvíkkandi ferðalögum

Nám á vegum Hjartasetursins. 

Grunnskólakennari

Kennaraháskóli Íslands. Ég hef 20 ára reynslu í kennslu og að leysa samskiptamál og stuðla að almennri vellíðan barna. Í agamálum studdist ég við aðferðina uppeldi til ábyrgðar (restitution) en hún er mjög falleg og kemur mjúklega og fallega til móts við alla aðila. Börn, foreldra og kennara.

Meistaragráða í ferðamálafræðum.

Háskóli Íslands. Þetta nám er mjög fræðilegt og víðfemt. Það kemur m.a. inn á stjórnun, viðskipti, sálfræði ofl.

Stjórnun og starfsmannamál

Diplómanámi í Háskóla Reykjavíkur. Þar lærði ég m.a. mannauðsstjórnun o.fl. sem nýst hefur mér mjög mikið í lífi og starfi.

Eins og staðan er í dag þá elska ég lífið og allt það sem það er að færa mér. Ég fer þann farveg sem mér er beint að og ég er endalaust að læra, lesa bækur, fara á námskeið o.s.frv. Ég mun aldrei hætta að læra og mitt helsta markmið í lífinu er að vaxa sem persóna, fyrir sjálfa mig, fólkið mitt og alla.