Finnum leiðina saman - námskeið

Námskeið

Finnum leiðina saman

Finnum leiðina saman er einstaklingsnámskeið sem sett er saman út frá þörfum hvers og eins. Markmið námskeiðsins er að hjálpa þiggjanda að komast heim í eigið hjarta, að geta lifað lífinu í sátt við sjálfan sig og aðra og náð líkamlegri og andlegri slökun, vellíðan og hamingju.

Í upphafi námskeiðs fer fram viðtal þar sem leið hvers og eins er metin og tímar skipulagðir í framhaldi af því. Sumir eru að glíma við verki, aðrir eru að glíma við tilfinningalegan vanda, þunglyndi, sorg, hræðslu, áföll o.s.frv. Á námskeiðinu verður sú blanda verkfæra notuð sem þykir henta best fyrir hvern einstakling. Ég nota yin Yoga bandvefslosun sem felur m.a. í sér mjög einfaldar og léttar yogaæfingar, einstaklingsmiðaðar Yoga nidra hugleiðslur og djúpslökun/dáleiðslu þar sem orkulíkaminn talar við okkar innra sjálf. Ég mun einnig nota tónheilun, orkuheilun og/eða reikiheilun allt eftir því hvað þyggjandi tengir best við.  

Það er misjafnt hvað einstaklingar þurfa marga tíma en flestir þurfa 5-10 tíma. Einnig er hægt að bóka staka tíma í heilun (reikiheilun, orkuheilun og tónheilun), yoga nidra og yin yoga bandvefslosun. Allt er þetta notað á námskeiðinu en á mismunandi hátt eftir því hver vandinn er. Endilega nálgist frekari upplýsingar um þessar aðferðir undir viðeigandi flipum á þessari heimasíðu. 

Ég býð einnig upp á sjálfsheilunarkennslu. Þá getur fólk heilað sjálft sig á milli tíma og þannig flýtt til í bataferli sínu. Ég kenni aðferðirnar smám saman og rifja þær upp reglulega. Ég mun afhenda bækling, myndbönd ofl. svo skjólstæðingur hafi eitthvað til að styðjast við í vinnu sinni heima fyrir. Ég get einnig séð um ákveðið aðhald ef þess er óskað. Ótrúlega gefandi og skemmtilegt og upphaf að byrjun sem þú getur engan vegin ímyndað þér.Yin