Reiki heilun
Reiki heilun
Heilunarorka
Reiki er heilunarorka sem flæðir af sjálfsdáðum í gegnum hendur þess sem gefur heilunina. Það besta við reikið er að það veit hvert það á að fara. Þiggjandi lætur sér líða vel sitjandi eða liggjandi, hann þarf ekkert aðhafast, engar kröfur, bara liggja og njóta. Í reikiheilun finna þiggjendur mikinn innri frið og jákvæða orku streyma inn í líkamann. Engin heilun er eins en allar eru þær unaðslega notalegar og þiggjandi kemur endurnærður tilbaka.
Reiki er samsett úr orðunum Rei og Ki
- Rei: Andleg þekking
- Ki: Máttur lífsins
Rei veit hvað veldur öllum vandamálum og hvað á að gera til að leysa þau.
Ki er nauðsynlegur lífsmáttur, öll sú orka sem fer í að hreyfa allar lifandi verur fyrir utan líkamlega orku.
Ég elska að gefa reiki af því að það er ást, kærleikur, friður, það virðir alla, elskar alla og er alveg laust við trúarbrögð.