Sagan mín
Sagan mín
Í öllum sögum er lærdómur
Ég er kennari af líf og sál. Kenndi í grunnskóla í tæp 20 ár og þar var aðal áhugamál mitt velferð og líðan nemenda minna.
Árið 2016 lenti ég í aftanákeyrslu og fóru verkir í hálsi að gera vart við sig skömmu síðar. Smám saman hætti ég að geta stundað áhugamál mín sem nærðu mig og öll hreyfing fór einnig að detta út. Geta mín og þol til vinnu fór einnig dvínandi. Ég náði að sinna vinnu minni í 3 ár en datt svo algerlega út af vinnumarkaði vegna verkja.
Ég var stanslaust nær lömuð af verkjum dag eftir dag, mánuð eftir mánuð í rúm 3 ár.
Ég fékk svo verkjalyf og þau hafa hjálpað mér mikið. Smám saman fór ég að geta tekið þátt í lífinu, en ég þurfti að forgangsraða öllu upp á nýtt. Verkjalyfin voru ekki „ókeypis“ töfralausn. Þau komu með alls konar aukaverkunum sem ég þurfti að sætta mig við. Ég tók þau alls ekki alltaf því langtíma notkun dregur úr virkni þeirra, þau eru meira svona „spari“. Því er mikilvægt að forgangsraða. Ég var þó oft verkjuð og mjög oft veik af aukaverkunum. Ég var hrædd og alltaf að reyna að finna út úr því hvaða samsetning verkjalyfja og lífstíls hentuðu. Ég rak mig á marga veggi, stundum virkaði eitthvað í smá tíma og svo alls ekki lengur.
Til að gera langa sögu stutta þá leiddu þessir verkir mig að þeirri leið sem ég er á í dag og fyrir það er ég óendanlega þakklát. Að hjálpa fólki á heildrænan hátt. Stundum er ekki nóg að einblína á líkamann, það þarf að skoða heildarmyndina, skoða andlegu hliðina líka, orkulíkamann, æskuna, áföll og hvað maður gæti verið að bera í dna-inu sínu svo eitthvað sé nefnt. Þetta er sá hluti sem ég hef verið að vinna mest með eftir að vestræn læknavísindi gátu ekki hjálpað mér. Sem betur fer geta þau hjálpað mjög mörgum en það þarf að vinna þetta saman, andlegu og líkamlegu hliðina á heildænan hátt.
Ég er alltaf að læra meira og meira og áhuginn minn vex í sama hlutfalli. Ég hreinlega brenn fyrir því sem ég er að gera. Haustið 2023 fór ég til Nepal í heilan mánuð til að bæta ofan á þekkingu mína. Ég lærði þar orkuheilun, tónheilun, sálarfræði, fornar lækningaraðferðir og orkustöðvanudd svo eitthvað sé nefnt. Vorið 2025 er kláraði ég árslangt nám hjá Guðbjörgu Ósk Friðjónsdóttur “Lærðu að elska þig” og býð upp á einstaklingsnámskeið/þerapíu út frá því. þetta er nám sem Ósk hannaði sjálf út frá áratuga reynslu í að hjálpa fólki sem meðferðaraliði. Ósk stundaði m.a. nám í Bandaríkjunum hjá virtum fræðimönnum eins og Gabor Maté, Joe Dispensa ofl. Þetta nám er mjög “spiritual” og bætti mjög miklu við þekkingu mína á hvernig alheimurinn virkar. Núna er ég að læra “Family constellation” kynslóðaheilun og það er algerlega magnað og ég myndi segja nauðsynlegt að prófa ef manneskja stendur frammi fyrir miklum áskorunum eða skilur ekki hvers vegna hlutirnir eru eins og þeir eru hjá sjálfum sér og/eða einhvers staðar í fjölskyldunni þeirra.
Ég er búin að prófa svo mikið á eigin skinni og leita til svo margra mismunandi aðila í leit minni að heilsu að ég er mjög góð í að sjá hvað hver og einn þarf til að geta heilast. Ég er búin að klára nám í hvernig á að halda rými fyrir fólk sem fer í hugvíkkandi ferðalögum , ásamt fyrirvinnu og eftirvinnu. Það er svakalega áhugavert og það gleður mig að sjá hvað það er almennt mikil jákvæðni gagnvart slíkum heilunarmeðferðum hér á landi þar sem efnin hafa hjálpað fjölda fólks. Það er gott að grípa til þeirra þegar fólk er komið alveg í þrot og lífslöngun lítil sem engin. Eða eins og í mínu tilviki, hvaðan koma þessir verkir. Mikilvægt er að fara í svona vinnu hjá fagaðila sem heldur utan um allt ferlið sem fylgir þessu.
En ég er hvergi nær hætt að læra og það er margt framundan. Ég er meðal annars, ásamt Áslaugu Berg að bæta við mig 9D, en það er öndunaraðferð sem hefur hjálpað fjölda manns.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis, pulvinar dapibus leo.