Umsagnir
Ef þú vilt hlúa að líkama og sál og losa um streitu, mæli ég heilshugar með jógaþerapíu og/eða heilun hjá Lilju. Hlý og þægileg rödd hennar skapar rólegt og afslappandi andrúmsloft sem mér finnst mikilvægt að sé til staðar í slíkum meðferðum. Meðferðirnar sem ég fór í hjá Lilju veittu mér mikla vellíðan og losuðu meðal annars um spennu og álag sem hafði hrjáð mig um tíma. Ég get því ekki annað en mælt 100% með heimsókn til hennar ef þú vilt losa um andlegt og líkamlegt álag og láta huga líkama vinna saman að bættu heilbrigði.
Kristín Pétursdóttir
Ég fór í heilun til Lilju og þvílík dásemd. Umhverfið fallegt, nærandi og hlýtt. Lilja er einstök, gefandi og hlý. Ég fór á vit ævintýranna og fylltist af orku og var í góðu jafnvægi eftir tímann. Ég mæli 100% með Lilju ef fólk vill fjárfesta í sjálfu sér og láta sér líða vel.
Eiríkur Jónsson
Ég hef verið að fara til Lilju í yin yoga bandvefslosun og heilun. Ég
get heilshugar mælt með henni. Hún er með yndislega nærveru og góða orku og ég
hef alltaf náð góðri tengingu og djúpri slökun hjá henni.
Magnea Lena Björnsdóttir
Reikiheilun hjá Lilju er einu orði sagt dásamleg. Mjúk en um leið öflug orka sem græðir líkama og sál. Ég mæli 100% með Lilju.
Sólrún Pálsdóttir
Ég fer reglulega í heilun til Lilju og ég er alltaf endurnærð eftir að hafa verið hjá henni. Hún tekur alltaf hlýlega á móti mér og nær að að jarðtengja mig í hvert sinn. Hún er með fallega nærveru, róandi rödd og ég finn fyrir miklu öruggi og trausti í heiluninni. Ég lenti í miklu áfalli og þjáist af kvíða í kjölfarið sem ég er að vinna úr og heilunin hefur hjálpað mikið til við úrvinnsluna, jarðtengt mig og hjálpað mér að ná djúpri slökun. Ég hlakka alltaf mikið til að koma til Lilju og finn hvað það gerir mér gott. Mæli eindregið með fyrir alla.
Auður Finnbogadóttir
Ég mæli eindregið með heilun og nidra tímum hjá Lilju. Líðanin á meðan á tímunum stóð var ótrúlega góð, svo mikil ró yfir mér og djúp slökun. Eftir tímana var ég áfram í þessari dásamlegu ró og í svo góðu jafnvægi. Lilja er frábær í þessu hlutverki. Nærveran æðisleg. Ég náði ótrúlega góðri slökun, næ hreinlega ekki orðum utan um þetta. Nærandi, helilandi, styrkjandi og styðjandi. Takk elsku Lilja, þú ert algerlega að blómstra í þessu.
Guðfinna Hugrún Gísladóttir
Ég hef tvisvar sinnum farið til Lilju. Hún er algjörlega mögnuð. Núna í desember fór ég til hennar til að vinda ofan af mér stress og álag sem ég hafði skapað mér bæði í vinnu og í námi. Lilja náði að vinda ofan af mér með yin yoga bandvefslosun og heilun. Ég fór sultuslök inn í jólafríið. Það er svo gott að koma til hennar. Ég mun klárlega fara reglulega til að endurstilla hugann.
Berglind Arndal
Þegar ég kom í heilun til Lilju í heilun fann ég strax góðan anda frá henni. Hún er með svo góða nærveru.
Mín upplifun var mjög sérstök, það var eins og ég væri allt í einu komin í annan heim og þar var maður í hvítum kirtli með sítt hár sem stóð við höfðalagið á bekknum og gaf frá sfrá sér góða nærveru. Hann lagði hendur sínar á axlirnar á mér það var undarlega góð tilfinning. Heilunin veitti mér mikla vellíðan og það var eins og stóru fargi hafi verið af mér lyft.
Ég mæli með heilun hjá Lilju. Ekki spurning.
Ágústa Hafdís Finnbogadóttir
Kom í heilun og í einkatíma í Yoga Nidra til Lilju. Það var tekið sérstaklega vel á móti mér í hlýlegu umhverfi. Mér leið ótrúlega vel á eftir og hef sjaldan náð eins góðri slökun. Ég var algjörlega endurnærð eftir tímann og get heilshugar mælt með Lilju sem meðferðaraðila.
Hekla Hannibalsdóttir
Það er alger draumur að koma til Lilju, hvort sem um er að ræða heilun, jóga Nidra eða yin yoga bandvefslosun. Lilja hefur einstaka nærveru og mætir manni með mikilli umhyggju og hugarró. Hún hefur mikinn metnað í því sem hún gerir og er fullkomlega til staðar allan tímann. Ég upplifi mikla einlægni og algert traust. Lilja er einstakur heilari og ég finn alltaf mjög mikla orku streyma inn í kerfið mitt þegar ég fer til hennar.
Í bandvefslosuninni mætir hún manni þar sem maður er og fer er rólega í allar æfingarnar. Æfingarnar veita mikla slökun en á sama tíma losa þær um spennu og streitu í líkama og huga. Ég hef aldrei farið í eins djúpa slökun og komist í eins mikla snertingu við sjálfa mig og þegar ég prófaði einkatíma í jóga Nidra hjá henni í beinu framhaldi af heilun, það er algjörlega magnað. Með sinni mjúku og róandi röddu leiddi hún mig inn í heim sem ég hafði aldrei komist inn í áður. Ég hef aldrei upplifað jafn djúpa slökun og í þessum tímum. Ekkert betra en að endurstilla huga eftir erilsama viku. Ég mæli heilshugar með tímunum hjá Lilju. Hún er fagmanneskja fram í fingurgóma. Maður finnur fyrir öllum þeim kærleika og metnaði sem hún hefur til að hjálpa manni til að fá sem mest út úr því sem maður er að fást við að hverju sinni.
Laufey Karlsdóttir
Í heildina þá finnst mér lífið í dag miklu auðveldara og bjartara en það var áður en ég fór á námskeiðið "Lærðu að elska þig" hjá Lilju. Ég er sáttari við sjálfa mig og geng inn í bjarta framtíð laus við allan ótta og áhyggjur. Ég lærði margt um lífið og þann leyndardóm sem það hefur að geyma og svo lærði ég einnig svo mikið um sjálfa mig. Það eru alls konar viðhorf hjá mér sem hafa breyst til hins betra og gert lífið enn skemmtilegra og spennandi en það var áður. Viðhorf mitt gagnvart nánustu fjölskyldu minni hefur til að mynda lagast mikið og sambandið við hana sömuleiðis. Ég bý yfir miklu meiri samúð og kærleika til sjálfrar mín og allra almennt. Ég er dugleg að notfæra mér hugleiðslur og tækni sem mér var kennd á námskeðinu, sem höfðu það að markmiði að hjálpa mér að sjá fólk og verkefni/vandamál lífsins á jákvæðari og uppbyggilegri hátt en áður. Ég horfi öðruvísi á erfið mál og fólk og er nánast hætt að pirra mig á alls konar sem ég eyddi allt of mikilli orku í hér áður fyrr. Ég sé ekki tilganginn með að burðast með liðna atburði sem skipta engu máli lengur. Ég dýpkaði skilning minn og tengingu við innsæið mitt og er dugleg að hlusta á það og fylgja því. Það er einn af lyklunum að farsælli framtíð.
Arnbjörg G. Finnbogadóttir