Tónheilun er meðferð sem hjálpar til með að endurstilla taugakerfið. Hún hefur verið notuð í mörg hundruð ár gegn ýmis konar kvillum. Ég býð upp á þrjár meðferðir. Meðferðirnar virka best ef þær eru allar gerðar í röð, ein á dag eða 1 og 2 gerðar á sama degi og nr. 3 sólarhring síðar. Sumir tala um algera slökun og vellíðan meðan á meðferð stendur, öðrum finnst þetta óþægilegt og jafnvel valda höfuðverk. Það er allt eðlilegt, höfuðverkurinn líka. Það er verið að koma frumunum í líkamanum í eðlilegt flæði og það getur tekið á. Mælt er með einni meðferð á dag og orkuheilun í beinu framhaldi þ.e. að mæta 3 daga í röð í tónheilun og orkuheilun í beinu framhaldi, samtals 1,5-2 klst. Bíða svo í einhvern tíma og endurtaka leikinn eftir þörfum. Skálarnar sem ég nota eru 300 ára gamlar, 7 laga skálar frá Tíbet, keyptar í Nepal í gegnum heilarann Rahul Bahrti sem sjálfur notar tónheilun mikið í sinni heilunarvinnu.
Meðferð1 felst í því að endurvekja undirmeðvitundina. Hún virkar vel á eftirfarandi vanda: Þjáningar og verki hvers konar, mígreni, stress, ofhugsanir, minnisleysi, þegar fólk hefur yfirgefið sjálft sig, veit ekki hvert það er, eða er ósátt við hvert það er. Deyjandi fólk, eyrnasuð, MS sjúkdóminn, skjaldkirtillinn, exem. Heilaæxli, parkinsons veikina og margt fleira.
Meðferð 2 Felst í því að hreinsa miðlínuna okkar (central line purification). Hún virkar vel á fólk sem hefur verið misnotað á einhvern hátt t.d. kynferðislega, MS sjúklinga og Parkinsons sjúklinga.
Meðferð 3 Felst í að endurstilla líkamann eftir meðferðir 1 og 2. Meðferðin virkar vel á tíðarverki, verki í mjóbaki, setttaugina og alls kyns kynferðisleg vandamál.