Reiki heilun kennaranámskeið
Lærðu Reiki
Kyrrð
Boðið er upp á tvenns konar námskeið sem hvort um sig tekur 2 daga.
1.Grunn kennaranámskeið og
2. Reikimeistaranámskeið fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiðinu.
Grunn námskeiðið:
Báða dagana fá nemendur reikivígslur en það er guðleg innstilling sem tengir hinn vígða við hærri stig meðvitundar og ótakmarkaðan aðgang að heilunarorku. Hún opnar orkustöðvar í höfði, hjarta og lófum til þess að leiða Reiki. Ath. ekki er krafist neinnar guðlegrar hreinsunar eða uppljómunar til þess að það virki. Það geta allir lært þetta og fengið víglsu. Báðir dagarnir taka ca. 6-7 klst. hver og boðið er upp á te, vatn, snarl og hádegisverð.
Reiki 1, er tekið á fyrsta deginum. Þá fer fram kynning á reiki og uppruna reikis til að mynda. Vígsla 1 fer fram og farið er yfir handstöður og þær æfðar á heilunarbekk. Allir nemendur fá að upplifa reiki, bæði að gefa og þyggja.
Reiki 2, er tekið á seinni deginum. Þá fá nemendur kynningu á reikitáknunum, hvernig þau virka og hvernig á að nota þau. Í framhaldi af því fer víglsa 2 fram og nemendur æfa sig í reikiheilun með notkun táknanna. Það er mikill munur þegar táknin eru búin að bætast við í heilunarvinnunni.
Nemendur læra ýmislegt annað t.d. fjarheilun, þeir læra að senda reiki fjarblessun, senda óskir inn í ásetning sinn hver sem hann er, senda reiki til andlegs meistara, engla og margt fleira.
Ég var einu sinni í leigubíl á leiðinni út á flugvöll. Bílstjórinn sem sat fyrir framan mig var alveg brjálaður í skapinu, blótaði umferðinni og öllu því sem á vegi hans var. Þetta fannst mér óþægilegt og ég ákvað að prófa fjarheilun á hann. Hann steinhætti að haga sér svona þegar ég byrjaði á heiluninni. Þetta var alveg magnað.
Lærðu Reiki
Reikimeistaranámskeið
Reikimeistarnámskeiðið bætir þeim möguleika við að mega kenna öðru fólki Reiki. Gott er að láta nokkra mánuði líða á milli grunnnámskeiðs og reikimeistaranámskeiðs. Fá sér heilunarbekk (einnig hægt að gefa reiki í rúmi eða sitjandi) og vera virkur í að æfa sig í allavega 2-3 mánuði. Ég tók þetta námskeið af því mig langaði til þess að dýpka kunnáttu mína og tengingu við Reiki. Ég var ekkert að hugsa um að fara að kenna þetta. Ég hef svo fengið beiðnir frá fólki um að kenna þeim Reiki og hef gert það með góðum árangri. Enginn veit sína æfina fyrr en öll er. Ég kenndi til að mynda manninum mínum Reiki sem hann gaf mér annað slagið sem verkjastillingu. Þegar ég var nýkomin úr aðgerð og að drepast úr verkjum þá var Reikið sem hann gaf mér langbesta verkjalyfið.
Reikimeistaranámskeiðið fer fram á svipaðan hátt og grunnnámskeiðið. Vígslurnar eru auðvitað öðruvísi þar sem verið er að vígja meistara og það bætast einnig við fleiri tákn sem eru mjög öflug í heilunarvinnunni.